Tap hjá Arnari og íslenska landsliðinu gegn Færeyjum
Arnar Pétursson. Mynd/HSÍ

Eyjamaðurinn Arnar Pétursson og stelpurnar í íslenska landsliðinu í handbolta mættu Færeyjum í undankeppni EM kvenna 2026, í Þórshöfn í dag. Leiknum lauk með fimm marka sigri Færeyja og voru lokatölur leiksins 35-30.

Fyrri hálfleikurinn var mjög jafn en staðan var 18-16, Færeyjum í vil í hálfleik. Færeyska liðið var töluvert sterkara í síðari hálfleik og jók forystu sína þegar líða tók á leikinn. Færeyjar unnu að lokum nokkuð öruggan fimm marka sigur. 

Sandra Erlingsdóttir, leikmaður ÍBV, var markahæst í liði Íslands með sjö mörk en sex þeirra komu af vítapunktinum. Eyjakonurnar Díana Dögg Magnúsdóttir og Elísa Elíasdóttir komust einnig á blað, Díana skoraði fjögur mörk og Elísa þrjú. Andrea Jacobsen skoraði eitt mark. 

Vonir Íslands um sæti á Evrópumótinu síðar á árinu dvínuðu eftir tapið í kvöld. Íslenska liðið þarf nú að treysta á að Svartfjallaland vinni Portúgal á morgun og þá spilar Ísland úrslitaleik gegn Portúgal um þriðja sæti riðilsins á sunnudaginn. 

Leikur Íslands og Portúgal fer fram á sunnudaginn kl. 16:00 á Ásvöllum.

Nýjustu fréttir

Malbik, hraun og list í Eyjum
Þak sett á afslátt Loftbrúar
Brattir þrátt fyrir bræluna
Spennandi vetur hjá fimleikafélaginu Rán
Eyjamenn sækja Val heim í mikilvægum leik
Eyjakonur geta tryggt þriðja sætið á Hásteinsvelli
Elísa Viðarsdóttir leggur skóna á hilluna
Íþróttamaður mánaðarins – Milena Mihaela Patru
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.