Í Morgunblaðinu í dag er sagt frá vandræðum Íslandsmeistara Hauka í handbolta en Eyjamaðurinn Gunnar Berg Viktorsson, besti varnarmaður úrvalsdeildarinnar í fyrra, er meiddur. Gunnar Bert er frá vegna meiðsla í mjöðm og mun ekki spila með Haukum fyrr en eftir áramót að því að talið er. Annað nokkuð merkilegt kemur fram í fréttinni en þar segir að Gunnar Berg stefni á að ljúka ferlinum með ÍBV.