Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari hefur valið 19 leikmenn til æfinga hjá A landsliði kvenna, hópurinn hittist og æfir á höfuðborgarsvæðinu 17. – 21. febrúar nk.
Næsta verkefni hjá stelpunum okkar er 19. – 21. mars nk. en þá fer fram undankeppni HM. Liðið drógst í riðil með Norður-Makedóníu, Litháen og Grikklandi. Riðilinn verður leikinn í Norður-Makedóníu.
Vegna Covid-19 heimsfaraldursins er ekki hægt að velja leikmenn sem spila erlendis í landsliðshópinn að þessu sinni. ÍBV á þrjá leikmenn í hópnum þar á meðal lýliðan Hörpu Valey Gylfadóttur.
Hópurinn er eftirfarandi:
Markverðir:
Eva Dís Sigurðardóttir, Afturelding (0/0)
Sara Sif Helgadóttir, Fram (0/0)
Saga Sif Gísladóttir, Valur (0/0)
Aðrir leikmenn:
Ásdís Guðmundsóttir, KA/Þór (2/0)
Birna Berg Haraldsdóttir, ÍBV (58/118)
Eva Björk Davíðsdóttir, Stjarnan (36/28)
Harpa Valey Gylfadóttir, ÍBV (0/0)
Helena Rut Örvarsdóttir, Stjarnan (37/77)
Karen Knútsdóttir, Fram (102/369)
Lovísa Thompson, Valur (19/28)
Mariam Eradse, Valur (1/0)
Ragnheiður Júlíusdóttir, Fram (26/27)
Rut Jónsdóttir, KA/Þór (94/191)
Steinunn Björnsdóttir, Fram (35/27)
Sunna Jónsdóttir, ÍBV (56/42)
Thea Imani Sturludóttir, Valur (40/54)
Tinna Sól Björgvinsdóttir, HK (0/0)
Unnur Ómarsdóttir, Fram (0/0)
Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Valur (28/14)
Eftirfarandi leikmenn gáfu ekki kost á sér í verkefnið:
Katrín Ósk Magnúsdóttir, Fram (2/0)
Sigríður Hauksdóttir, HK (16/34)
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.