Ganga upp Heimaklett sem fyrirhuguð var í hádeginu á morgun, laugardag, fellur niður vegna veðurs. Þess í stað mun Friðbjörn Valtýsson sem ætlaði að leiða gönguna, vera með skemmtilegan fyrirlestur um Heimaklett, klukkan 12.00 í Sagnheimum. Friðbjörn er einn af þeim sem þekkir Heimaklett út og inn og verður því um afar fróðlegan fyrirlestur að ræða.