Hvað viljum við?
Með ódrepandi baráttuþreki og skýrum markmiðum um áratuga skeið tókst verkalýðshreyfingunni á Íslandi að leggja grunn að því velferðarsamfélagi sem við teljum svo sjálfsagt nú á dögum. �?að kostaði fórnir en smám saman þokaðist í rétta átt og fátækt þokaði fyrir betri hag og auknu félagslegu öryggi. �?essarar baráttu eigum við því ætíð að minnast.
�?að er því nöturlegt til þess að hugsa að nú er þróunin enn að færast á þann farveginn að bilið milli þeirra sem betur mega sín og hinna sem minna hafa, er að aukast. �?etta á bæði við um launakjör en einnig og kannski ekki síður um félagslegt öryggi og réttlæti. Misréttið blasir víða við og nægir hér að nefna nokkur dæmi:
�?� Sífellt er vegið að verkalýðshreyfingunni og markmiðið virðist vera að skammta henni svo lág laun að vart er mannsæmandi. Um leið og verkalýðshreyfingin fer fram á sanngjörn laun fáum við alltaf að heyra í sama kórnum sem telur íslenskt launafólk vera að setja þjóðfélagið á hausinn. �?eir sem hæst tala eru gjarnan þeir sem hafa árslaun almenns launamanns í hverjum mánuði. �?etta dæmi þekkjum við vel t.d. þegar Drífandi og undirmenn á Herjólfi kröfðust mannsæmandi launa nú fyrir skemmstu.
�?� Enn er því óréttláta kerfi við lýði haldið að auðlindir landsins eru í örfárra höndum og þeir geta leikið sér með þær að eigin vild án þess að nokkur fái að gert.
�?� Enn er sótt að sjúkum og öldruðum með því að skerða ýmsa félaslega þjónustu og krefjast síhærri fjárhæða af þeim til að fá þá þjónustu sem þeir þó sannarlega eiga rétt á.
�?ví er ekki að undra þótt við spyrjum okkur þeirrar spurningar hvort þetta sé það þjóðfélag sem við viljum. Erum við tilbúin til þess að fórna baráttumálum og árangri þeim sem afar okkar og ömmur náðu? Eigum við að sitja þegjandi og láta öll þessi ósköp yfir okkur ganga? �?essum spurningum og mörgum öðrum ættum við að velta vel fyrir okkur, kannski ekki síst á 1. maí.

Nýjustu fréttir

Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.