Íbúafjöldi Vestmannaeyja á þriðja ársfjórðungi þessa árs er 4.270 talsins. Um síðustu áramót voru þeir 4.280, íbúum hefur því fækkað um 10 það sem af er árinu. �?etta kemur fram á vef Hagstofu Íslands. �?ar kemur líka fram að karlar eru 2.220 talsins og konur 2.050. Erlendir ríkisborgarar búsettir í Eyjum eru 240.