ÍBV og KR mættust í úrslitaleik Fótbolta.net mótsins þar sem ÍBV sigraði leikinn sannfærandi 2-1. Eyjamenn byrjuðu leikinn mun betur og höfðu algjöra yfirhönd fyrstu 10-15 mínúturnar. KR-ingar komust þá aðeins inn í leikinn en þá kom mark frá ÍBV nánast upp úr þurru en þar var að verki nýjasti leikmaður ÍBV, Daninn Mikkel Maigaard Jakobssen með stórglæsilegt mark.
Eftir markið var ÍBV aftur með öll tök á leiknum og þeir voru ekki lengi að bæta við öðru marki en hinn Daninn í liði ÍBV, Simon Schmidt sem er reyndar á reynslu hjá félaginu kom með frábæra sendingu inn í teig eftir að hafa farið illa með einn KR-ing brunað upp kantinn þar sem Mikkel kom með gott hlaup inn í teig og setti boltann í stöngina og inn, 2-0.
Í síðari háfleik voru Eyjamenn beittari framan af en eftir að Pablo Punyed fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt spjald sóttu KR-ingar í sig veðrið og náðu að skora á 78.mínútu leiksins. �?eir settu flest alla sína leikmenn fram til að reyna jafna metinn og ÍBV fékk fullt af tækifærum til að beita skyndisóknum en fóru illa með það, sem kom þó ekki að sök og ÍBV sigraði sannfærandi 2-1.
�?etta er fyrsta skipti sem ÍBV sigrar Fótbolta.net mótið.