ÍBV sigraði Hauka í Eyjum
Sandra Erlingsdóttir sækir að marki Hauka í leiknum í dag. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í handbolta tók á móti Haukum í tólftu umferð Olís deildar kvenna í Eyjum í dag. Jafnræði var með liðunum  í upphafi leiks en Eyjakonur komust fljótlega þremur mörkum yfir. Staðan í hálfleik 13:10. 

Eyjakonur voru með öll völd á vellinum í síðari hálfleik og voru komnar með sjö marka forystu þegar rúmur stundarfjórðungur var til leiksloka. Haukar klóruðu aðeins í bakkann undir lok leiks en ÍBV vann að lokum öruggan þriggja marka sigur. Lokatölur leiksins 23:20. Eftir tólf umferðir er ÍBV á toppnum ásamt liði Vals með 20 stig. Haukar eru í fjórða sæti með 11 stig.

Sandra Erlingsdóttir átti enn einn stórleikinn í liði ÍBV og var markahæst í leiknum með 11 mörk. Amalia Frøland varði 21 skot í marki ÍBV.

Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 11 mörk, Birna Berg Haraldsdóttir 7, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 2, Ásta Björt Júlíusdóttir 2, Birna María Unnarsdóttir 1. 

ÍBV mǽtir næst ÍR á útivelli, fimmtudaginn 15. Janúar kl. 18:00.

Heil umferð fór fram í Olís deild kvenna í dag og hér eru úrslit úr hinum leikjunum:

KA/Þór 23:21 ÍR

Stjarnan 34:28 Selfoss

Valur 19:30 Fram

Nýjustu fréttir

Tökum þátt í að gera bæinn okkar enn betri!
Hvert siglir Herjólfur í dag
Efnilegir pílukastarar láta til sín taka
Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust
Tími til kominn að taka næsta skref
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Hárígræðslur í Tyrklandi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.