ÍBV er komið í undanúrslit eftir sex marka sigur á FH í síðari leik liðanna sem fram fór í Hafnarfirði í dag. Tvo sigurleiki þurfti til að komast áfram í undanúrslitin en ÍBV vann fyrri leik liðanna í Eyjum eftir framlengdan leik. Í undanúrslitum un ÍBV mæta Fram, sem lagði Gróttu að velli í tveimur leikjum. Fyrsti leikur undanúrslitanna verður föstudaginn 12. apríl en ÍBV og Fram mætast þá á heimavelli Framara.