Valur tók á móti ÍBV að Hlíðarenda í hörkuleik í dag. Liðin skildu jöfn 3-3 en mörkin hefðu getað orðið mun fleiri en markmaður Vals, Þórdís átti stórleik í marki Vals og áttu leikmenn ÍBV í stökustu vandræðum með að koma boltanum framhjá henni. Sanngjörn úrslit í þessum stórskemmtilega leik.