Karlalið ÍBV er sigurvegari Ragnarsmótsins í handbolta 2013. Mótið fór fram á Selfossi síðustu daga en Eyjamenn unnu alla þrjá leiki sína í mótinu, nú síðast úrvalsdeildarlið ÍR í úrslitaleik en lokatölur urðu 29:30 fyrir ÍBV. Í gær lagði ÍBV Gróttu að velli 32:26.