Íslandsmeistarar 2014
ÍBV er Íslandsmeistari 2014. Peyjarnir okkar tryggðu sér titilinn með frábærum sigri á Ásvöllum, 28:29 í æsispennandi leik fyrir framan riflega 2200 manns og helmingurinn af þeim voru Eyjamenn. Stuðningsmenn ÍBV voru hreint magnaðir, breyttu þessum erfiða útivelli í heimavöll og strákarnir fylgdu í kjölfarið. �?að var í raun ekkert sem sagði að ÍBV myndi vinna þennan titil. �?eir höfðu tapað fjórum sinnum gegn Haukum á Ásvöllum í vetur og í rimmu liðanna, hafði heimaliðið alltaf unnið. Auk þess er Haukaliðið þrautreynt og eins og áður sagði, var ekkert sem gaf í skyn að ÍBV myndi vinna. En leikmenn og Eyjamenn allir voru á öðru máli, fylltu Ásvelli þannig að úr varð líklega eftirminnilegasti handboltaleikur síðustu ára, jafnvel áratuga. �?etta er fyrsti Íslandsmeistaratitill karlaliðs ÍBV í handbolta og er afrek sem vekur mikla athygli enda ÍBV nýliði í efstu deild. Já þessi árangur er hreint ótrúlegur en allir lögðust á eitt, þjálfarar, handboltaráð, leikmenn, stuðningsmenn og Eyjamenn allir og saman eigum við þennan titil.

Eftir skamma stund verða settar inn myndir af fagnaðarlátunum og viðtöl munu birtast hér í þessari frétt, jafn óðum og búið verður að vinna þau.

Nýjustu fréttir

Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.