„Það er athyglisvert hversu mikill viðkomubresturinn er hjá lundanum, 75% og að bresturinn skuli koma fram svona víða um landið, eingöngu Norðurland heldur sínu,“ sagði Páll Scheving, bæjarfulltrúi og lundakarl um hugmyndir um friðun lundans og fjögurra annarra svartfuglstegunda næstu fimm árin. Það er starfshópur sem Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra skipaði í september um verndun og endurreisn svartfuglastofna sem leggur til að fimm tegundir sjófugla af svartfuglaætt verði friðaðar fyrir öllum veiðum og nýtingu næstu fimm árin en þetta eru álka, langvía, stuttnefja, lundi og teista.