Ég fór ungur til náms í Ameríku árið 1986 og kláraði þar BS gráðu í fjármálafræði. Eftir námið vann ég í meira en áratug á Wall Street sem bankamaður, en eftir árásirnar á Tvíburaturnana (e.World Trade Center) 11. september 2001, fór botnin úr verðbréfamarkaðnum og óhug sló í mig. Í lok árs 2002 flutti ég búferlum til Prag í Tékklandi og kom þar upp hótelrekstri sem ég hætti síðan um mitt ár 2009. Ég skráði mig á kjörskrá 1. desember 2008 til þess að geta kosið í alþingiskosningunum vorið 2009, ekki grunaði mig þá að ég myndi sjálfkrafa falla út af kjörskrá 4 árum seinna.