Undirritaður er nýkominn úr vinnu sinni hjá Vestmannaeyjahöfn, sest niður með kaffibolla, kveikir í sígarrettu og les Morgunblaðið. Mér blöskraði þegar ég las þar grein á bls. 19 eftir Jónas Garðarsson. Hvert er Jónas að fara eða bara hvernig líður honum var mín hugsun? �?að eru skrattar allsstaðar á móti honum og Herjólfsfólki. �?að mætti halda að hann vissi ekki að fráfarandi Ríkisstjórn skapaði þessar aðstæður. �?etta er dapurlegt, kæri Jónas, sérstaklega þar sem þú vitnar í orð Steingríms um að sjómenn geti sótt sinn sjómannaafslátt til atvinnurekanda. �?g spyr hvenær og hversvegna Steingrímur var í forsvari og var einfaldlega veitt umboð fyrir samninganefnd atvinnurekanda? Veit ekki meir?
�?að vill bara þannig til að þegar menn setjast í stóla sem eru æðri öðrum vilja þeir ofmetnast af því. Jónas, þú segir ekki satt (lýgur) og það er hlutur sem á ekki að vera til. Sjálfur hef ég horft á fundi hjá bæjarstjórn Vesmannaeyja á netinu og þar segir fólk að það vilji lausn á þessari deilu. �?að þykir dularfullt hjá Jónasi. Umboðsmaður Eimskips í Vestmannaeyjum sem vill, að hans sögn ausa úr skálum reiðarinnar yfir Herjólfsfólkinu er dularfullur. Valmundur formaður Jötuns sem fór eftir ASÍ samþykkt á sínum tíma og vildi halda verðbólgunni niðri er dularfullur og sveik að mati Jónasar starfsmenn Herjólfs. Staðreyndin er sú að menn vildu halda stöðuleika í þjóðfélaginu og það var stutt og ekki stutt liðið frá hruni Íslands. Hvað kemur næst frá Jónasi?
Jónas og áhöfn Herjólfs eru að leita á vitlaus mið. �?etta er ekki atvinnurekanda að bæta sjómannaafsláttinn. �?að er ríkið sem á að koma að því. Eins og allir vita tók ríkisstjórn vinstrimanna afsláttinn. �?ar er starfandi ný ríkisstjórn á Íslandi í dag sem við sjómenn eigum að sækja okkar réttlæti til.
Við Jónas vil ég segja að hann á ekki að ljúga upp á saklaust fólk hvort sem það eru börn eða fullorðnir. Batnandi mönnum er best að lifa. Hvet Herjólfsmenn og Eimskipsmenn til að koma þessari deilu inn á borð ríkisins. �?ar á þessi deila heima. Hún á hvergi annnarsstaðar heima.
Bergur Kristinsson
starfsmaður Vestmannaeyjahafnar