Kalla eftir hugmyndum vegna aðgerða á Byggðaáætlun

Sérstök áhersla er lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf og verða verkefni sem hafa varanleg og veruleg jákvæð áhrif á þróun byggðar og búsetu sett í forgang. Landshlutasamtök sveitarfélaga geta fyrir hönd sóknaráætlanasvæða sótt um framlög sem í boði eru, en alls verða allt að 71,5 milljónum króna veittar til sértækra verkefna svæðanna.

Veitt verða framlög til verkefna á sóknaráætlunarsvæðum:

* sem nýtast einstökum svæðum eða byggðalögum innan landshlutans.

* sem nýtast landshlutanum í heild.

Við mat á umsóknum verður stuðst við eftirfarandi þætti:

* Íbúaþróun, aldurssamsetning og kynjahlutföll

* Samsetningu atvinnulífs og atvinnustig

* Meðaltekjur

* Önnur atriði sem skipta máli við mat á aðstæðum viðkomandi svæðis eða landshluta

Í nóvember s.l. fékk SASS úthlutað styrk að upphæð 13,5 milljónum króna úr sjóðnum vegna Aðgerðaráætlunar um sjálfbæra lýðfræðilega þróun miðsvæðis Suðurlands. Unnin verður rannsókn, móttökuáætlun markaðsgreining og verkefnisáætlun en markmiðið er að efla samfélagslega sjálfbærni svæðisins. Hér má lesa um þau fjölbreyttu verkefni sem hlutu styrk í fyrra. Nánari upplýsingar um verkefnið má nálgast á heimasíðunni sass.is eða hjá Þórði Frey Sigurðssyni, sviðstjóra þróunarsviðs, en hann tekur einnig við tillögum að verkefnum á Suðurlandi á netfangið thordur@sass.is til 7. mars n.k.

Nýjustu fréttir

Saltfisksala hjá meistaraflokkum ÍBV
ÍBV með mikilvægan sigur á ÍR
Kveikjum neistann: Jákvæðar vísbendingar
Hvattning til Eyjamanna
Heilsuefling starfsfólks fær aukið vægi
Handhafar Frétta-píramída 1992-95
ÍBV sækir ÍR heim
Siglt til Þorlákshafnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.