Óskað var eftir aðstoð lögreglu þegar leikur ÍBV og Álftaness fór fram á sunnudag. Áhorfandi hafði verið með athugasemdir gegn einum af leikmönnum Álftaness og beindust þær að litarhætti leikmannsins. Áhorfandinn varð ekki við ósk forráðamanna ÍBV að láta af athugasemdunum og því var kallað á aðstoð lögreglu við að vísa áhorfandanum út úr húsinu. Þetta kemur fram í dagbókarfærslu lögreglunnar sem má lesa hér að neðan. Þess má til gamans geta að í liði ÍBV eru einmitt tveir lögreglumenn.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst