Strákarnir tóku þrjú stig í Kaplakrika í dag þegar þeir unnu FH-inga 2-0, en liðin áttust við í 16. umferð Pepsi-deildar karla. Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði bæði mörk ÍBV í dag.
Kristján Guðmundsson þjálfari ÍBV sagði í samtali við mbl.is í dag að leikurinn hafi gengið eftir eins og þeir höfðu lagt upp með, „FH-ingarnir byrjuðu leikinn vel og fengu nokkur hálffæri. Ég var svolítið smeykur í byrjun leiksins. Mér fannst við fálma of mikið á þeim. Við lágum aftarlega en kannski voru menn bara að finna völlinn og finna út styrk FH-liðsins. Við unnum okkur hægt og bítandi inn í leikinn og skiluðum heilt yfir mjög góðum leik. Fyrra mark okkar var stórkostlegt og það góð tilfinning að fara inn í hálfleikinn með tveggja marka forystu. Mér finnst vera komið ákveðið jafnvægi í liðið og það leit betur út í þessum leik en í mörgum leikjum í sumar. Í seinni hálfleik unnu menn þá vinnu sem þeir áttu að gera og þetta var virkilega vel gert hjá strákunum. Það er ekki hægt að segja annað en að þetta hafi verið gríðarlega mikilvæg þrjú stig sem við kræktum í. Við erum ekki búnir að gefa það út hvort við erum í botnbaráttu eða toppbaráttu en stigin okkar segja að við erum nær botnbaráttunni. Með þessum sigri ýttum við okkur fjær botnliðunum sem er vel,“ sagði Kristján í samtali við mbl.is
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst