Konur sjómanna: Andrea Guðjóns Jónasdóttir

Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlega um land allt í gær og sjómönnum fagnað. Mikil og skemmtileg dagskrá var í boði hér í Eyjum og var sjómönnum fagnað yfir helgina. Við hjá Eyjafréttum náðum tali af nokkrum konum sjómanna og fengum að spyrja nokkurra spurninga varðandi fjölskyldulífið.

Nafn: Andrea Guðjóns Jónasdóttir

Aldur? Ég er 34 ára.

Fjölskylda? Ég er gift Óttari Steingrímssyni og eigum við saman þrjú börn, Ísold 10 ára, Hinrik Daða 7 ára og Birni Berg 3 ára.

Hversu lengi hefur þú verið sjómannsfrú? Það eru nokkur ár eða um kannski 10 ár sem hann hefur verið samfleytt á sjó en var áður fyrr bara á sumrin.

Á hvaða skipi er maki þinn? Hann er á Sigurði VE.

Kynnist þið þegar maki er á sjó? Nei, þá var hann ekki á sjó og ég sagðist aldre ætlar að vera sjómannskona en það var fljótt að breytast.

Hefur maki þinn alla ykkar tíð verið á sjó? Nei, Óttar fór að vinna á Samgöngustofu eftir háskólann enn fann fljótt að það átti alls ekki við hann að hanga inn á skrifstofu allan daginn. Hann var því fljótur að drífa sig á sjóinn.

Hvernig hefur gengið að samræma sjómennsku og fjölskyldulíf? Bara mjög vel, maður þarf að hafa skipulag og rútínu þegar maður er einn og það hefur bara genið þokkalega.

Helstu kostir sjómennskunnar? Kostirnir eru þeir að það geta verið löng og góð frí á milli túra og þá sérstaklega á þeim veiðum sem Sigurður er á. Það má þó taka fram að þeir voru nú kannski of mikið heima þar sem það var nú ekki loðnuvertíð þetta árið og getur það líka tekið á.

Helstu gallar sjómennskunnar? Það eru helst fjarverurnar þegar mikið liggur undir í samveru með fjölskyldu og vinum. Þeir sem þekkja Óttar vita að hann er mikið fyrir samverustundir og má helst ekki missa af miklu.

Eruð þið með hefð um sjómannahelgina? Já helgin er yfirleitt eins, við byrjum á tónleikum á föstudeginum, förum svo með fjölskyldunni og vinum á bryggjuna á laugardeginum og gerum okkur glaðan dag. Laugardagskvöldið þá njótum við upp í höll með frábærri áhöfn Sigurðar VE og öðru góðu fólki svo er sunnudagurinn tekinn á Stakkó.

Eitthvað að lokum? Gleðilegan sjómannadag kæru sjómenn og fjölskyldur þeirra, njótið helgarinnar.

Nýjustu fréttir

Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
„60 milljónir eru þeim ofviða“
Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði
Eyjamaðurinn: Elís Þór
Miðflokkurinn býður fram í Eyjum
Kyrrðarbæn í dag
Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.