Í dag, mánudag, lýkur Safnahelginni í Bæjarleikhúsinu þegar kvikmyndin Eldfjall verður sýnd. Um er að ræða tvær sýningar, klukkan 17:00 og 20:00 og verður leikstjórinn, Rúnar Rúnarsson á staðnum. Myndin tengist Vestmannaeyjum þannig að Heimaeyjargosið hrindir af stað atburðarrás myndarinnar, sem hefur nú þegar hlotið fjölda verðlauna á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum.