Kynningarfundur, vegna fyrirhugaðrar friðlýsingar búsvæðis sjófugla í Vestmannaeyjum verður haldinn þriðjudaginn 28. febrúar kl 12:10 í Sagnheimum, safnahúsi við Ráðhúströð.
Á fundinn mæta fulltrúar frá umhverfis og auðlindaráðuneytinu (Sigurður �?ráinsson og Guðríður �?orvarðardóttir), Vestmannaeyjabæ og Náttúrustofu Suðurlands til að kynna málið og svara fyrirspurnum.
Efnistök fundarins eru:
- Tilgangur og markmið friðlýsingarinnar
- Áhrif friðlýsingarinnar á hina ýmsu viðburði, skipulag og nytjar
- Vöktun fuglabjarga í Eyjum
- Fyrirspurnir og samtal við fundarmenn
- Eyjamenn og þá sérstaklega nytjarétthafar og ferðaþjónustuaðilar eru hvattir til að mæta til að kynna sér málið.