Rúmum klukkutíma eftir að tilkynnt hafði verið um að Herjólfur myndi áfram sigla til Þorlákshafnar á morgun hefur verið ákveðið að sigla fyrstu ferð þangað en fara tvær ferðir til Landeyjahafnar á meðan sjávarföll leyfa. Fyrri ferð til Landeyjahafnar verður farin klukkan 16 og til Eyja aftur klukkan 17:40. Seinni ferðin til Landeyjahafnar verður farin klukkan 19 og aftur verður siglt til Vestmannaeyja klukkan 20:15.