Eyjamaðurinn Leifur Jóhannesson stundar nám í viðskiptafræði í Reykjavík og hefur á þessu ári jafnframt leikið handknattleik með �?rótti. Á heimasíðu félagsins segir að hann hafi verið valinn handknattleiksmaður �?róttar árið 2013. �?á segir á heimasíðunni: �??Leifur Jóhannesson er fyrirliði meistaraflokks karla. Leifur kom til �?róttar í janúar 2013 og hefur síðan þá spilað 21 deildarleik fyrir �?rótt og skorað í þeim 119 mörk. Í mörgum leikjum í vetur hefur Leifur borið uppi sóknarleik liðsins og skoraði hann t.d. 11 mörk í sigurleik gegn Hömrunum. Innan vallar sem og utan vallar er Leifur mikill leiðtogi og flott fyrirmynd fyrir iðkendur yngri flokka og mun hann geta hjálpað ungum leikmönnum félagsins á næstu árum sem munu stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki. Handknattleiksdeildin er mjög stolt af því að hafa jafn hæfileikaríkan leikmann sem Leifur er og vonum við að hann verði hjá okkur næstu árin og geti með reynslu sinni hjálpað okkur �?rótturum að komast í fremstu röð á ný.�??