Rekstur leikskóla er ekki lögbundið skylduverkefni sveitarfélaga. Engu síður er sú þjónusta ein sú mikilvægasta sem veitt er í nútíma sveitarfélögum. Í Vestmannaeyjum er horft til barna sem helstu auðlinda samfélagsins og því mikilvægt að standa vel að þjónustu við þau. Ánægja, líðan og árangur þjónustuþega eru einnig meðal mest notuðu mælikvarða á gæði samfélagsins. Þetta veit Vestmannaeyjabær og metnaðurinn hvað þessa þjónustu varðar er því mikill.