Tyrkjaránsdagur 12. júlí 2025
Tyrkjaran Ads 2
Mynd/aðsend

Sögusetrið 1627 í Vestmannaeyjum mun að venju í júlímánuði bjóða upp á dagskrá sem tengist Tyrkjaráninu 1627. Á þessu ári eru liðin 398 ár frá því að ræningjar frá Alsír komu hingað til Vestmannaeyja þar sem þeir rændu, rupluðu,  drápu 36 íbúa og tóku 242 manneskjur með sér á þrælamarkaði í Alsír. Þessir atburðir mörkuðu djúp spor í sögu Vestmannaeyja og því er full ástæða til að minnast þeirra og miðla milli kynslóða Eyjamanna.

Nú í ár minnist Sögusetrið atburðanna með dagskrá laugardaginn 12. júlí kl. 14 í Safnahúsinu.

Dagskráin í Safnahúsinu verður þannig:

  1. Óskar Kristinn Vignisson, kvikmyndagerðarmaður sýnir nýja 25 mínútna langa heimildamynd um  Tyrkjaránið í Vestmannaeyjum 1627 sem hann er að leggja lokahönd á.  Sögumaður og höfundur handrits er Adam Nichols. Myndin er textuð á íslensku. Myndin var tekin í Eyjum sumarið 2024. Tökumaður var Halldór B. Halldórsson.

 

  1. Karl Smári Hreinsson, mun fjalla um þýðingar og útgáfur á Reisubók séra Ólafs Egilssonar og einnig um aðrar bækur um Tyrkjaránið sem hann hefur unnið að ásamt Adam Nicholsen alls hafa á síðustu árum 16 útgáfur af bókum þeirra komið út á alls fimm tungumálum eða eru að koma út á næstunni.

 

  1. Upptaka Halldórs B. Halldórssonar af dagskrá Sögusetursins í Krosskirkju í Austur- Landeyjum 8. júní 2024 verður opnuð á vefnum sagnheimar.is. Í Krosskirkju var meðal annars fjallað um bein og óbein tengsl kirkjunnar við Tyrkjaránið.

 

Sögusetrið hvetur Vestmannaeyinga og gesti og taka þannig þátt í að minnast þeirra atburða sem gerðust sumarið 1627. Aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis.

 

Ragnar Óskarsson formaður Sögusetursins 1627

 

Nýjustu fréttir

Sandra náði áfanga með íslenska landsliðinu
Með fullfermi eftir örstutta túra
Friðrik Dór mætir á Þjóðhátíð
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
40 ára aldursmunur á vinningshöfum
Hvert viljum við stefna?
Margrét Rós: „Ég er hvorki í fýlu né lít á mig sem tapara“
Slá ekki slöku við
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.