VM5 strengurinn á land í Eyjum í kvöld
Eftir smá baráttu tókst að koma strengnum í land á sandinum í gær. Mynd Óskar Pétur.

„Veðrið og öldurnar voru ekki alveg að spila með okkur í gær en eftir smá baráttu tókst okkur að koma strengnum í land á sandinum.  Skipið er nú á siglingu yfir til Vestmannaeyja og ef allt gengur samkvæmt áætlun verður strengurinn dreginn í land í Eyjum um kvöldmatarleytið,“ segir Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi Landsnets við Eyjafréttir í morgun.

Veður og sjólag hefur verið hagstætt frá því lagning strengjanna, VM 4 og VM5 hófst á sunnudaginn. Í gærkvöldi rauk hann um og ölduhæð fór upp undir tvo metra. Nú hefur lægt, ölduhæð komin niður fyrir einn metra. Lagningarskipið Aura er komið á móts við Elliðaey þannig að VM5 strengurinn ætti að komast í land fyrir kvöldið.

Lagning tveggja nýrra rafstrengja frá Landeyjahöfn til Vestmannaeyja hófst á föstudaginn. Verkið er unnið af norska fyrirtækinu Seaworks, sem sérhæfir sig í lagningu neðansjávarrafstrengja. Við það eykst flutningsgeta um 120 MVA – verklok áætluð um miðjan júlí.

Tilgangurinn er að bæta afhendingaröryggi raforku til Vestmannaeyja og tryggja örugga orkutengingu til framtíðar. Núverandi strengur hefur verið í notkun í 12 ár og hefur bilað tvisvar.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.