Úrslitakeppni N1 deildarinnar heldur áfram í dag, laugardag þegar ÍBV sækir Gróttu heim á Seltjarnarnesið klukkan 14:00 í dag. ÍBV hafði betur í fyrri leik liðanna á fimmtudaginn, 26:19 og gæti með sigri í dag, tryggt sér sæti í undanúrslitum Íslandsmótsins en tvo sigurleiki þarf til að komast áfram.