Dagana 28. mars �?? 6. apríl nk. standa ýmis söfn, fyrirtæki og stofnanir á Suðurlandi fyrir sameiginlegu kynningarátaki á þeim gersemum sem svo víða leynast í fjórðungnum. Safnahús Vestmannaeyja tekur virkan þátt í átakinu og verður boðið upp á margvíslegar dagskrár á tímabilinu.
Við hefjum samstarfið degi fyrr eða á fimmtudeginum 27. mars kl. 17. �?ann dag opna nemendur úr Myndlistarskóla Steinunnar sýningu á afrakstri námskeiðs hjá Steinunni Einarsdóttur. Fyrr um daginn er boðið upp á hefðbundinn ljósmyndadag Safnahúss kl. 13-16.
Við upphaf kynningarátaksins, föstudaginn 28. mars kl. 17, kynnum við samstarfsverkefni Safnahússins við Vöruhúsið. Um er að ræða átak við að bera kennsl á einstaklinga af myndum úr myndasöfnum héðan úr Eyjum sem eru í vörslu ljósmyndasafns Vestmannaeyja. Myndirnar eru skannaðar og settar upp í Vöruhúsinu. �?eir sem telja sig þekkja viðkomandi á mynd eru vinsamlegast beðnir um að rita nöfn þess eða þeirra á blað sem hangir við myndina. Hinir sömu eru jafnframt beðnir um að rita nöfn sín og símanúmer á blaðið svo unnt sé að leita frekari upplýsinga sem og að þakka fyrir aðstoðina!
Einnig bendum við á að á hverjum fimmtudegi kl. 13-16 bjóðum við upp á sérstakan ljósmyndadag í Safnahúsi. �?ar sýnum við fjölda mynda af Vestmannaeyingum fyrri tíðar sem ekki hefur tekist að bera óyggjandi kennsl á. Gleðilegt er að geta þess að í allt að 70-80% tilvika breytast myndirnar úr nafnlausum andlitum í nafngreinda einstaklinga.
Kvikmyndabútar Sigurgeirs
Á laugardeginum, 29. mars, kl. 13 drögum við fram í Einarsstofu gleymda kvikmyndabúta úr fórum Sigurgeirs Jónassonar ljósmyndara. Sighvatur Jónsson, fjölmiðlamaður m.m., hefur endurunnið myndirnar á stafrænt form og gerir stutta grein fyrir myndefninu. Að þessu sinni sýnum við lifandi myndir sem Sigurgeir tók í kringum 1968. �?ær sýna nýja hlið á listamanninum og opna óvæntan glugga inn í horfna mannlífsveröld.
Sama dag, laugardaginn 29. mars kl. 14, verður opnuð sýningin Staðlausir stafir í Sagnheimum. Um er að ræða sýningu á samstæðum dýrgripum úr geymslu Sagnheima þar sem hver gripur segir sína sögu. Einnig verða sýndir ómetanlegir munir úr eigu Júlíönu Sveinsdóttur sem safninu bárust fyrir skömmu að gjöf frá Danmörku. Niðurstöður rannsókna á skipsklukkunni sem skipverjar á �?órunni Sveinsdóttur VE færðu safninu í desember verða kynntar. Boðið verður upp á kaffi og leiðsögn um sýninguna.
Fimmtudaginn 3. apríl kl. 12 verður Saga og súpa í Sagnheimum. Að þessu sinni mun Ásmundur Friðriksson, alþingismaður, fjallar um leyndardóma Suðurlands eins og honum einum er lagið. Sama dag kl. 13-16 er síðan ljósmyndadagur í Ingólfsstofu, þar sem ljósmyndum þekktra sem óþekktra ljósmyndara á síðustu öld verður varpað á vegg.
Við lokum deginum og þátttöku Safnahúss að þessu sinni með því að opna sýningu á listaverkum Kristleifs Magnússonar í Einarsstofu þennan sama dag, fimmtudaginn 3. apríl kl. 16. Sýningin er liður í átaki Listvina Safnahúss við að draga fram Vestmannaeyinga sem eru þekktir í sögu Eyjanna fyrir allt annað en listsköpun en hafa í stopulum tómstundum málað, teiknað eða skapað með öðrum hætti falleg listaverk. Sýningin er unnin í samstarfi við fjölskyldu Kristleifs.
Einnig dagskrá í Sæheimum
Af sama tilefni verða haldin tvö erindi í Sæheimum. Annars vegar tekur Valur Bogason fyrir lífsskilyrði sandsílis á laugardaginn kl. 16.00. Hins vegar segir Páll Marvin Jónsson frá rannsóknum á háhyrningum við Vestmannaeyjar þriðjudaginn 1 april kl. 16.00.