Loðnuleit framundan
not_lodn_op
Á loðnumiðunum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Gert er ráð fyrir að loðnu verði leitað nú í byrjun febrúarmánaðar og bæði hafrannsóknaskip og veiðiskip taki þátt í leitinni. Þetta kemur fram í frétt á vef Síldarvinnslunnar í dag.

Leitin sem fram fór í janúar olli vonbrigðum. Í janúarleiðangrinum kom ís í veg fyrir að skipin kæmust yfir allt hið fyrirhugaða leitarsvæði og má ætla að loðnan hafi enn haldið sig að verulegu leyti undir ísnum. Þá vakti það athygli leiðangursmanna að engin loðna virtist vera gengin suður fyrir Langanes en samkvæmt upplýsingum frá gömlum skipstjórum þarf það ekki að koma á óvart. Skipstjóranir segja að á fyrri tíð hafi loðna stundum ekki gengið suður fyrir Langanes fyrr en komið var fram yfir miðjan febrúar. Sannleikurinn er sá að loðnan er brellin og erfitt að reikna út atferli hennar.

Það ríkir ávallt spenna þegar loðnu er leitað í aðdraganda vertíðar og loðnuveiðarnar skipta fyrirtæki, einstaklinga og sveitarfélög miklu máli. Loðnuvertíðin er annatími í loðnubæjunum og þá verða mikil verðmæti til á skömmum tíma.

Skip frá Síldarvinnslunni hafa tekið þátt í loðnuveiðum frá árinu 1966 og loðna var fyrst unnin í fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins árið 1968. Þegar loðnuvinnslan hófst veltu menn því fyrir sér hvort loðnan gæti komið í stað norsk – íslensku síldarinnar sem um það leyti var að hverfa af miðunum við landið. Framleiðsla á frystri loðnu hófst fyrst hjá Síldarvinnslunni árið 1971 og framleiðsla á loðnuhrognum árið 1978.

Fyrir Austfirði er það afar mikilvægt að væntanleg loðnuleit skili árangri og gefinn verði út loðnukvóti. Menn eru minnugir svonefndra loðnuleysisára þegar veiðar voru afar takmarkaðar eða engar. Menn muna til dæmis eftir árunum 1981 – 1982, 1990 – 1991 og ekki síst árunum 2019 og 2020, segir í fréttinni.

Nýjustu fréttir

Hátt í 50 metrar á Stórhöfða
Samgöngur  við Eyjar settar í hættu?
Gamla myndin – Kartöflugarðar í Eyjum 
Landsbankinn og N1 bætast í hluthafahóp Eyjaganga
Eló heldur tónleika í Eyjum
Þórunn Sveinsdóttir VE kveður Eyjar
Rauði krossinn í Eyjum fagnaði 85 árum með opnu húsi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.