�?au eru heldur á fyrra fallinu, lömbin tvö í Eystra �?orlaugargerði sem litu þennan heim í fyrrinótt. Ingibjörg Jónsdóttir (Bubba) og Garðar Arason eru með nokkrar kindur og áttu ekki von á lömbum fyrr en á hefðbundnum sauðburði í vor. Allt gekk að óskum, mamman bjargaði sér ein og sjálf og voru lömbin, sem nefnd hafa verið Mars og Góa, þegar komin á spena þegar Bubba leit við í fjárhúsinu í gærmorgun.