Í hádeginu í dag var dregið í 8-liða úrslit Borgunarbikars kvenna í knattspyrnu. ÍBV mætir Breiðabliki en þessi sömu lið áttust við í sömu keppni í fyrra og sá leikur var meira en lítið eftirminnilegur. Á sama tíma fór fram setning Shellmótsins með tilheyrandi listflugi og flugeldasýningu, sem hafði vissulega áhrif á leikinn. Þá var flugeldasýningin engu minni á sjálfum vellinum og að lokum réðust úrslitin í bráðabana í vítaspyrnukeppni þar sem Breiðablik hafði heppnina með sér.