Svo gæti farið að Magnús Stefánsson, handknattleiksmaðurinn sterki í ÍBV hafi leikið sinn síðasta leik í vetur. Magnús meiddist illa í öxl í leik gegn ÍR á dögunum en hann er á leið til sérfræðings til að láta skoða meiðslin, sem hafa haldið honum frá æfingum. �??�?að lítur allt út fyrir það að liðband í öxl, sem heldur herðablaðinu niðri við axlarliðinn, sé slitið. �?g fékk talsverða byltu í leiknum gegn ÍR, og í henni hefur liðbandið slitnað. �?að er hins vegar ekki ljóst hvort ég þarf aðgerð eða ekki,�?? er haft eftir Magnúsi í Morgunblaðinu en hann segist vona að ná úrslitakeppninni, þótt hann spili ekki síðustu tvo leikina í deildarkeppninni.