Guðnýju Jennyju Ásmundsdóttur, landsliðsmarkverði í handknattleik, var á dögunum sagt upp samningi sínum við ÍBV á þeim forsendum að félagið hefði ekkert við meiddan markvörð að gera. Samningnum var sagt upp munnlega af formanni handknattleiksdeildar ÍBV á fundi í búningsklefa karlaliðsins í handknattleik í íþróttahúsinu í Vestmannaeyjum, segir í frétt á mbl.is
Jenny sleit krossband í hné í upphitun fyrir landsleik í Póllandi í síðari hluta mars og gekkst undir aðgerð á mánudaginn. Komið hefur í ljós að Jenny var ekki tryggð hjá ÍBV. „Sextánda apríl var ég kölluð á fund formanns handknattleiksdeildar ÍBV í íþróttahúsinu í Vestmannaeyjum. Þegar ég kom þangað var ekkert fundarherbergi laust svo hann fékk mig til þess að koma með sér inn í karlaklefa handboltaliðsins. Þar settist formaðurinn niður á bekkinn og tilkynnti mér að félagið ætlaði að nýta sér riftunarákvæði í samningi við mig. Forsendur væru að ÍBV hefði ekkert við meiddan markvörð að gera,“ sagði Jenny í samtali við Morgunblaðið.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.