Mikið hefur verið um fyrirspurnir frá fólki síðustu daga um það hvort það hafi verið bólusett fyrir mislingum á árum áður. Mikið af þessum upplýsingum eru í eldri pappírssjúkraskrám og eru ekki aðgengilegar sem stendur. Vegna anna starfsfólks þessa dagana, m.a. í tengslum við mislingafaraldurinn er ekki hægt að verða almennt við svona fyrirspurnum samdægurs eða allra næstu daga, sjálfsagt að verða við því um leið og tími gefst til. Starfsfólk heilsugæslunnar skráir þá sem þess óska niður á lista og síðan verður haft samband við viðkomandi þegar búið er að vinna úr fyrirspurninni.
Benda má á að:
Á heimasíðu embættis landlæknis má finna nýjustu upplýsingar og ráðleggingar um mislinga á Íslandi.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.