ÍBV sigraði KA/�?�??ór, 29:25, í Olís-deild kvenna í handknattleik á Akureyri í dag. Eyjastúlkur eru þar með áfram í 3. sæti deildarinnar, nú með 32 stig en KA/�?�??ór er með 7 stig í 11. sæti.
KA/�?�??ór var með eins marks forystu að loknum fyrri hálfleik, 15:14. Gestirnir frá Vestmannaeyjum gáfu heldur í eftir leikhléið og sigruðu að lokum með fjögurra marka mun. Drífa �?orvaldsdóttir var markahæst í liði ÍBV með 11 mörk en Steinunn Guðjónsdóttir og Hulda Bryndís Tryggvadóttir skoruðu 6 mörk hvor fyrir KA/�?�??ór.