Mjaldrasysturnar Litla-Grá og Litla-Hvít koma til landsins um mánaðamótin júní-júlí. Mjaldrarnir, sem hafa fengið leyfi til búsetu í kví við Heimaey, áttu að vera fluttir til Vestmannaeyja í apríl en komu þeirra seinkaði vegna lokun Landeyjahafnar, þessu greinir rúv frá.
Sigurjón Ingi Sigurðsson, deildarstjóri sérlausna hjá TVG Zimsen, segir að ekkert hafi verið rætt um að flýta fyrir komu mjaldranna vegna opnun Landeyhahafnar. Samkvæmt plani koma þeir til landsins um mánaðamótin júní-júli. Þá séu mestar líkur á að veður verði gott að höfnin verði örugglega opin. Stefán segir þó að vikulega sé fundað um stöðu mála og aðstæður gætu breyst. Mjaldrarnir tveir verða fluttir frá Changfeng Ocean World sædýragarðinum í Shanghai til Íslands með flugvél Cargolux. Flutningur þeirra hér innanlands erí í höndum TVG-Zimsen. Samtökin Sealife Trust standa að verkefninu og er markmiðið að gefa hvölunum, sem hafa alist upp í umsjón manna og geta því ekki bjargað sér í náttúrunni, tækifæri til að lifa við ákjósanlegar aðstæður.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.