Monopoly eða Matador
Lagf.
Íþróttamiðstöðin í Eyjum.

Aðsend grein

Eygló Egilsdóttir & Garðar Heiðar Eyjólfsson

Nú hefur Vestmannaeyjabær öðru sinni sett í útboð: rekstur og uppbyggingu heilsuræktaraðstöðu í Vestmannaeyjum.

Niðurstaða fyrra útboðs var kærð, kæruferlið tók marga mánuði hjá Kærunefnd útboðsmála og kom niðurstaðan rétt fyrir jólin, einföld og skýr: Útboðið var dæmt ólöglegt og bæjaryfirvöld dæmd til að greiða 1 mkr. í málskostnað okkar, kærenda, og þar að auki skylt að greiða okkur skaðabætur.

Þessi niðurstaða er ekkert annað en áfellisdómur yfir stjórnsýslu bæjarins sem sá að öllu leyti um útboðið, stigagjöf og val á tilboðsgjafa. Leiða má að því líkur að þarna hafi verið reynt að hygla einum aðila umfram aðra og tryggja þar með algjöra einokun í rekstri heilsuræktar í Vestmannaeyjum.

Auk þessa, var bænum einnig gert að bjóða verkið út að nýju. Miðað við umfang útboðsins eins og því var stillt upp, úrskurðaði kærunefndin að það hefði átt að vera boðið út á öllu EES-svæðinu. En lögin kveða á um að fari heildarvirði samnings á samningstíma, yfir 808 milljónir króna, skulu verk boðin út með þessum hætti.

Nálarauga

Nú þegar nýtt útboð hefur litið dagsins ljós, getum við ekki annað en stungið niður penna og bent á galla þess, því það er ekki annað að sjá en bæjaryfirvöld hafi ætlað að vanda sig aðeins betur við að koma þessu verkefni í hendur sama aðila og varð fyrir valinu í fyrra, ólögmæta, útboðinu.

Skilmálar nýja útboðsins eru svo strangir, að öllum sem lesa yfir skjölin, má vera ljóst að einungis einn aðili í heiminum uppfyllir þá. Það skýtur skökku við, því lögum um opinber innkaup er m.a. ætlað að ýta undir samkeppni og auka jafnræði sbr. 1gr. laganna:

Markmið með lögum þessum er að tryggja jafnræði fyrirtækja, stuðla að hagkvæmni í opinberum rekstri með virkri samkeppni og efla nýsköpun og þróun við innkaup hins opinbera á vörum, verkum og þjónustu.

Skilmálarnir kveða ekki bara á um lágmarks áskrifendafjölda, heldur árskorthafa sem eiga að vera minnst 5.000 manns. Til gamans má geta að heildar íbúafjöldi í Vestmannaeyjum er 4.470  manns skv. tölum frá Hagstofunni frá 1. jan 2025. Þrátt fyrir þennan fjölda í skilmálum, er ekki gert ráð fyrir fleiri en 1.000 manns í áskrift í hinni nýju stöð í Vestmannaeyjum. Það eru meira að segja tölur frá sjálfum Vm.bæ sem voru gefnar upp til Kærunefndar þegar nefndin kallaði eftir þeim. Ekki verður það ferli rakið frekar hér, það er efni í annan pistil.

Sú krafa er jafnframt gerð til tilboðsgjafa að hafa á opnunardegi tilboða, 10 ólíka hóptíma á stundatöflu sinni og að allir þessir tímar eigi að vera opnir öllum áskrifendum. Eftir óformlega eftirgrennslan, er okkur það til efs að fyrrverandi rekstraraðili hér í Eyjum hafi boðið upp á slíkan fjölda af opnum hóptímum.

Í skilmálum kemur enn fremur fram að stig verði gefin fyrir fjölda stöðva sem aðili hefur í rekstri annars staðar á íslandi. Sérstök stig eru gefin fyrir fjölda stöðva í Reykjavík, en nái aðili 6 stöðvum eða fleiri fást 20 stig, 20% af heildarstigagjöf!

Þar að auki eru mismunandi stig gefin fyrir stöðvar úti á landi, stöðvar á Suðurlandi, Suðurnesjum og Norðurlandi hafa þar mest vægi, en minna vægi hafa fámennari landshlutar: Austfirðir, Vestfirðir og Vesturland.

Engin sérstök stigagjöf er gefin fyrir stöð eða rekstur í Vestmannaeyjum, og þó búum við hér, á eyju.

Það þarf ekki háskólagráðu til að sjá að útboðinu hefur verið stillt upp til að hleypa einungis einum aðila í gegn. Enginn aðili í heiminum stenst þessa skilmála, utan einn.

Á pari við Pútín

Þessi útboðsgögn komu okkur ekki mikið á óvart, við vorum alveg búin að gera okkur grein fyrir því að stjórnsýslan myndi vanda sig betur í þetta skiptið, við að draga taum eins aðila umfram aðra.

Spurningin er bara af hverju?

Til hvers að fara í útboð, með tilheyrandi kostnaði, þegar það á hvort sem er bara að draga á taum eins aðila, akkúrat þess aðila sem hefur markaðsráðandi stöðu á Íslandi í geiranum?

Ekki nóg með að aðilar útboðsins hreyki sér af því að hafa farið þá göfugu leið, að finna óháðan aðila, sem hefur þó eflaust framkvæmt hundruði útboða með ágætum hætti fyrir hönd hins opinbera, heldur er sú ótrúlega staðreynd nú ljós, að eigandi þessa hlutlausa útboðsfyrirtækis var um langa hríð, og þar til fyrir nokkrum árum, starfsmaður hjá aðilanum sem hafði betur í fyrra, ólögmæta útboðinu.

Það var einnig mjög klókt af meirihlutanum að afgreiða málið í gegnum opinbera starfsmenn og bæjarráð eingöngu. Á engum tímapunkti fyrir opnun útboðs, var það borið undir fræðsluráð eða aðra kjörna bæjarfulltrúa.

Þetta var gert svona, vitandi að eftir að ferlið væri hafið, væri auðvelt að fjarlægja sig umræðunni og sleppa því að svara erfiðum spurningum, því aðilum málsins er óheimilt að tjá sig um útboðið sjálft á tilboðstíma, allt í nafni jafnræðis, sem var ekki í hávegum haft við ákvörðun útboðs skilamála. Það kemur aðilum stjórnsýslunnar afar vel að þurfa ekki að svara fyrir erfið eða óvinsæl mál svo stuttu fyrir kosningar.

Það er augljóst að allt þetta ferli er sett af stað til að slá ryki í augu almennings og með því er reynt fela að það er löngu búið að velja aðilann sem á að fá verkið. Hljómar eins og aðferð kennd við stórt ríki í austri.

Halda ráðamenn hér að almenningur hafi ekki augu til að sjá hversu augljóst þetta er, eða er komin valdablinda í meirihlutann? Meirihlutann, sem hefur nú ákveðið að hverfa á braut í heild sinni.

 

Eygló Egilsdóttir & Garðar Heiðar Eyjólfsson

 

Nýjustu fréttir

Monopoly eða Matador
Tómas Bent lék allan leikinn í sigri Hearts
Óskar stefnir á þriðja sætið hjá Sjálfstæðisflokki
Bjargið fær rausnarlega gjöf
Loðnufrysting í fullum gangi
Emil skoraði í sigri Íslands á Eistum
Fjórtán gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Líflegur laugardagsmorgunn – fullfermi og loðnuvinnsla í fullum gangi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.