ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki

ÍBV og Valur mættust í úrslitaleik Powerade bikars 3. flokks karla í handbolta í dag. ÍBV strákarnir gerðu líkt og stelpurnar fyrr um daginn og tryggðu sér bikarmeistartitilinn með þriggja marka sigri, 37-34. Valsmenn byrjuðu leikinn betur og voru yfir á fyrstu fimmtán mínútum leiksins. Eyjamenn hins vegar stigu upp og snéru leiknum sér í […]

Dýpið mælt í Landeyjahöfn

alfsnes_landey_tms

Dýpi var mælt í Landeyjahöfn fyrr í dag, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf. Eins og sést á myndinni hér að neðan er dýpi ekki nægilegt fyrir ferjuna til þess að sigla til og frá höfninni. Aðstæður eru sambærilegar og þegar dýpi var mælt síðast. Af þessum sökum verður áfram siglt til og frá Þorlákshöfn […]

ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna

ÍBV og Valur mættust í úrslitaleik Powerade bikars 3. flokks kvenna í handbolta í dag. ÍBV stelpurnar gerðu sér lítið fyrir og tryggðu sér bikarmeistaratitilinn með fimm marka sigri, 36-31. Valsstelpur byrjuðu leikinn betur og voru með forystuna framan af í leiknum. Eyjastelpur jöfnuðu leikinn rétt fyrir hálfleiksflautið og var staðan 17-17 í hálfleik. Eyjastelpur […]

Mars heilsar með frosti

Fyrsti sunnudagur mars-mánaðar heilsaði með frosti. Frostið var 1-2 gráður í morgun á Stórhöfða. Í nýrri spá Veðurstofunnar fyrir Suðurland er norðan 5-13 m/s í dag og léttskýjað. Gengur í norðvestan 10-18 á morgun, skýjað með köflum og þurrt að kalla. Lægir annað kvöld. Frost 0 til 10 stig. Halldór B. Halldórsson gerði sér ferð […]

Vel heppnað námskeið í Hvíta húsinu

Áhersla á endurnýtingu og sjálfbærni Í gær, þann 28. febrúar var haldið skapandi námskeið í Hvíta húsinu þar sem fatahönnuðurinn Selma Ragnarsdóttir leiddi þátttakendur inn í heim endurnýtingar. Á námskeiðinu var lögð áhersla á að endurnýta og laga það sem við eigum nú þegar – gefa flíkum nýtt líf í stað þess að henda þeim. […]

Loðnuvertíðin líflína fyrir japanskan markað 

Yukiko Ono, sem stýrir sölu og innkaupum á loðnuafurðum fyrir japanska stórfyrirtækið Maruha Nichiro, er stödd í Vestmannaeyjum í fyrsta sinn. Hún kom hingað gagngert til að fylgjast með hráefninu og tryggja gæði loðnu sem fer á japanskan markað.  „Ég dvel hér í eina viku og skoða hráefnið daglega,“ segir Ono, sem hefur starfað við loðnu frá árinu 2023 […]

Elliði með stórleik gegn Kiel

Eyjamaðurinn Elliði Snær Viðarsson átti frábæran leik fyrir Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær. Línumaðurinn knái skoraði níu mörk úr tíu skotum þegar þeir unnu átta marka sigur á Kiel, 26-34, á útivelli. Leikurinn var nokkuð jafn og var staðan í hálfleik til að mynda 15-14, Kiel í hag. Gummersbach voru svo mun […]

Laxey – Metnaðarfull uppbygging sem styrkir atvinnulíf og framtíð samfélagsins

default

Hröð uppbygging – Atvinnuþróun og nýsköpun – Öflugir fjárfestar – Um 60% hluthafa í Vestmannaeyjum – Sérhæfð störf – Sjúkdómaöryggi – Sjálfbær framleiðsla – Hágæða framleiðsla – Ný höfn nauðsyn Uppbygging Laxeyjar er stærsta atvinnuverkefni sem ráðist hefur verið í í Vestmannaeyjum frá upphafi. Í viðtali við frumkvöðlana, Daða Pálsson og Hallgrím Steinsson fara þeir yfir aðdragandann, […]

Monopoly eða Matador

Lagf.

Nú hefur Vestmannaeyjabær öðru sinni sett í útboð: rekstur og uppbyggingu heilsuræktaraðstöðu í Vestmannaeyjum. Niðurstaða fyrra útboðs var kærð, kæruferlið tók marga mánuði hjá Kærunefnd útboðsmála og kom niðurstaðan rétt fyrir jólin, einföld og skýr: Útboðið var dæmt ólöglegt og bæjaryfirvöld dæmd til að greiða 1 mkr. í málskostnað okkar, kærenda, og þar að auki […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.