Áhersla á endurnýtingu og sjálfbærni
Í gær, þann 28. febrúar var haldið skapandi námskeið í Hvíta húsinu þar sem fatahönnuðurinn Selma Ragnarsdóttir leiddi þátttakendur inn í heim endurnýtingar. Á námskeiðinu var lögð áhersla á að endurnýta og laga það sem við eigum nú þegar – gefa flíkum nýtt líf í stað þess að henda þeim.

Selma deildi þekkingu sinni, hugmyndum og hagnýtum aðferðum sem gera fólki kleift að breyta, bæta og laga fatnað á einfaldan og skapandi hátt. „Stemningin var geggjuð og vinnugleðin mikil. Þátttakendur voru afar ánægðar með námskeiðið og fengu bæði innblástur og aukið sjálfstraust til að takast á við eigin verkefni heima fyrir. Áhuginn var slíkur að Selma hefur lýst yfir vilja til að koma aftur og halda annað námskeið – sem við hlökkum sannarlega til. Endurnýting og sjálfbærni eru málefni sem skipta samfélagið miklu máli og frábært að sjá slíkt frumkvæði í okkar nærumhverfi,“ segir Jóhanna Lilja Eiríksdóttir, kennari hjá Visku.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.