ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
ÍBV Powerade bikarmeistari 2026. Mynd/HSÍ

ÍBV og Valur mættust í úrslitaleik Powerade bikars 3. flokks karla í handbolta í dag. ÍBV strákarnir gerðu líkt og stelpurnar fyrr um daginn og tryggðu sér bikarmeistartitilinn með þriggja marka sigri, 37-34.

Valsmenn byrjuðu leikinn betur og voru yfir á fyrstu fimmtán mínútum leiksins. Eyjamenn hins vegar stigu upp og snéru leiknum sér í vil. Hálfleikstölur 17-14, ÍBV í hag.

Eyjamenn héldu uppteknum hætti í síðari hálfleik og lönduðu að lokum nokkuð öruggum þriggja marka sigri. Lokatölur leiksins 37-34.

Elís Þór Aðalsteinsson, leikmaður ÍBV, átti stórleik í liði Eyjamanna og skoraði 15 mörk. Hann var í lok leiks valinn leikmaður úrslitaleiksins.

Eyjafréttir óskar ÍBV strákunum innilega til hamingju með titilinn!

Elís Þór Aðalsteinsson var valinn mikilvægasti leikmaður úrslitaleiksins. Mynd/HSÍ

 

ÍBV strákarnir lyfta bikarnum í leikslok. Mynd/HSÍ

Nýjustu fréttir

Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.