Mars heilsar með frosti
Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson
Halldor B Staff
Halldór B. Halldórsson

Fyrsti sunnudagur mars-mánaðar heilsaði með frosti. Frostið var 1-2 gráður í morgun á Stórhöfða. Í nýrri spá Veðurstofunnar fyrir Suðurland er norðan 5-13 m/s í dag og léttskýjað. Gengur í norðvestan 10-18 á morgun, skýjað með köflum og þurrt að kalla. Lægir annað kvöld. Frost 0 til 10 stig.

Halldór B. Halldórsson gerði sér ferð um bæinn og tók upp myndband sem sjá má hér fyrir neðan veðurspánna hér að neðan.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:
Suðaustan 13-20 m/s með snjókomu í fyrstu og síðan rigningu eða slyddu, en hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hlýnandi veður, hiti 0 til 7 stig síðdegis, mildast syðst. Dregur úr vindi seinnipartinn, sunnan 8-15 um kvöldið og kólnar vestanlands með éljum.

Á miðvikudag:
Suðvestan 5-13 og él sunnan- og vestanlands, en léttskýjað annars staðar. Frost víða 0 til 5 stig.

Á fimmtudag:
Suðlæg átt 3-10 og él, en bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Suðaustan 8-15 og snjókoma á suðurhelmingi landsins um kvöldið. Frost 0 til 8 stig, kaldast fyrir norðan.

Á föstudag:
Sunnan 5-13, en 13-18 á vestanverðu landinu. Snjókoma eða él, en þurrt og bjart á Norður- og Austurlandi. Hiti breytist lítið.

Á laugardag:
Hvöss suðaustanátt með snjókomu eða slyddu, en rigning um tíma á láglendi. Hlýnar í veðri.
Spá gerð: 01.03.2026 08:11. Gildir til: 08.03.2026 12:00.

Play Video

Nýjustu fréttir

Þétt setinn skóli þegar haustönn hefst
Heimaklettur í allri sinni dýrð – en gönguleiðin bíður enn úrbóta
Fjögur lið frá ÍBV tóku þátt á Norðurálsmótinu
Stórleikur á Hásteinsvelli í kvöld
Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja
MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.