ÍBV og Valur mættust í úrslitaleik Powerade bikars 3. flokks kvenna í handbolta í dag. ÍBV stelpurnar gerðu sér lítið fyrir og tryggðu sér bikarmeistaratitilinn með fimm marka sigri, 36-31.
Valsstelpur byrjuðu leikinn betur og voru með forystuna framan af í leiknum. Eyjastelpur jöfnuðu leikinn rétt fyrir hálfleiksflautið og var staðan 17-17 í hálfleik.
Eyjastelpur spiluðu góðan varnarleik í síðari hálfleik og juku forskot sitt á Valsstelpum hægt og rólega. Að lokum vann ÍBV nokkuð öruggan fimm marka sigur. Lokatölur leiksins 36-31.
Birna María Unnarsdóttir, leikmaður ÍBV, skoraði níu mörk fyrir Eyjastelpur og var í lok leiks valin mikilvægasti leikmaður úrslitaleiksins.
Eyjafréttir óskar ÍBV stelpunum innilega til hamingju með titilinn!


Listi yfir umsækjendur um starf slökkviliðsstjóra…
Fagmannakvöld í Miðstöðinni – frá þorrablóti til…
Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og…
Kveikjum neistann – Jákvæðar niðurstöður en…
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og…