Laxey - Metnaðarfull uppbygging sem styrkir atvinnulíf og framtíð samfélagsins
default
Það er ótrúlegt að nú eru rétt þrjú ár síðan framkvæmdir hófust í Viðlagafjöru. Slátrun hófst í nóvember sl. og eru afköstin á átta tíma vinnudegi um 10.000 fiskar en hversu miklu er slátrað fer eftir stærð á fiski og stöðu á mörkuðum.

Hröð uppbygging – Atvinnuþróun og nýsköpun – Öflugir fjárfestar – Um 60% hluthafa í Vestmannaeyjum – Sérhæfð störf – Sjúkdómaöryggi – Sjálfbær framleiðsla – Hágæða framleiðsla – Ný höfn nauðsyn

Uppbygging Laxeyjar er stærsta atvinnuverkefni sem ráðist hefur verið í í Vestmannaeyjum frá upphafi. Í viðtali við frumkvöðlana, Daða Pálsson og Hallgrím Steinsson fara þeir yfir aðdragandann, áskoranirnar og þá miklu vinnu sem liggur að baki. Þeir ræða jafnframt stöðu samfélagsins, ábyrgð stjórnvalda og mikilvægi þess að skapa fjölbreytt og sérhæfð störf sem styrkja framtíð Vestmannaeyja. Þeir varpa ljósi á metnaðarfulla sýn þeirra, alþjóðlega samkeppni og þá trú, að nýsköpun geti orðið lykill að áframhaldandi vexti bæjarfélagsins. Framleiðsla er hafin og lofa fyrstu skrefin góðu en ljónin á veginum voru mörg og erfið viðureignar en þeir ruddu brautina með seiglu og góðra manna hjálp. Laxey fékk Fréttapýramídann sem fyrirtæki ársins 2025.

Nánar í nýjasta blaði Eyjafrétta þar sem er að finna yfirgripsmikið viðtal við þá félaga: Hægt er að gerast áskrifandi að Eyjafréttum hér á vefnum, en blaðið fæst einnig í lausasölu í Tvistinum og á Kletti. Áskrifendur geta nálgast vefútgáfuna hér. Ef þú vilt gerast áskrifandi þá er þetta síðan sem þú getur með auðveldum hætti náð þér í blaðið.

 

Nýjustu fréttir

Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.