Enn hefur Herjólfur ekki komist úr höfn í Eyjum en skipið átti að halda af stað klukkan 8 í morgun. Ástæðan er ölduhæð sem fer vaxandi þegar þetta er skrifað. Næsta athugun á brottför skipsins er klukkan 13:00 og verður farið af stað klukkan 13:30 ef veður leyfir. Klukkan tíu í morgun var tæplega 8,7 metra ölduhæð við Surtsey og 28 metra meðalvindhraði á Stórhöfða. Samkvæmt ölduspá lækkar ölduhæðin hægt þegar líða tekur á daginn en klukkan 18:00 er spáð 7 metra ölduhæð við Surtsey.
Uppfært:
Nú er næsta athugun klukkan 14:00 og ef ekki verður orðið fært þá, verður ferð Herjólfs í dag felld niður.