Tvö tilboð bárust í útboð Vegagerðarinnar um áætlunarflug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja fyrir tímabilið 2026–2029. Norlandair reyndist með lægsta tilboðið.
Tilboð félagsins nam 136,3 milljónum króna, en Icelandair bauð 146,3 milljónir króna. Áætlaður verktakakostnaður Vegagerðarinnar var 121,9 milljónir króna. Samningurinn er til þriggja ára, frá 1. september 2026 til 30. nóvember 2029, með möguleika á framlengingu, en um er að ræða áætlunarflug á tímabilinu desember – febrúar líkt og verið hefur undanfarin ár.