Ný vetraráætlun Herjólfs tekur gildi á föstudag
Í kjölfar netkönnunar um vetraráætlun Herjólfs sem fram fór daganna 11.-14. október sl. hefur verið ákveðið að breyta vetraráætlun Herjólfs í samræmi við niðurstöðu könnunarinnar.
Mjög góð þátttaka var í könnuninni en alls tóku 886 þátt. Niðurstaðan mjög afgerandi en 89,1% þátttakenda vilja að vetraráætlun Herjólfs verði breytt þannig að ferðafjöldi Herjólfs taki mið af þeim mismikla mikla fjölda farþega sem er milli daga. Rauntölur sýna að flestir ferðast með Herjólfi á sunnudögum og föstudögum en fæstir á þriðjudögum og miðvikudögum og á þriðjudögum og miðvikkudögum eru það í síðustu ferð dagsins sem færstir farþegar nota.
Tillaga að nýrri áætlun var send bæjaryfirvöldum í Vestmanneyjum og Vegagerðinni og hefur hún verið smþykkt þar. Ný áætlun er eftirfarandi:
Strætó áfram aka farþegum til og frá Landeyjahöfn þrisvar á dag eins og verið hefur.
Áætlunin mun taka gildi föstudaginn 25. október eins og áður segir og eftir það verður siglt samkvæmt nýrri áætlun. Ef sigla þarf til �?orlákshafnar munu brottfarartímar verða þeir sömu og verið hafa áður en sem fyrr megin áherslan á siglingar til Landeyjahafnar og það mun verða gert eins lengi og aðstæður leyfa.
�?að er von okkar að þessi breyting verði til hagsbóta fyrir farþega Herjólfs það var amk eina markmiðið með könnuninni. Við munum vinna áfram að bættri þjónustu Herjólfs með net könnunum og/eða með öðrum hætti, hér eftir sem hingað til.
Eimskip þakka þeim fjölmörgu sem tóku þátt í könnuninni kærlega fyrir þátttökuna.

Nýjustu fréttir

Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.