Opið hús verður í Ásgarði milli 18 og 21 í dag, þriðjudag. Á staðnum verða þrír þingmenn Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, þau Ragnheiður Elín Árnadóttir ráðherra, Unnur Brá Konráðsdóttir og Vilhjálmur Árnason. Ragnheiður stýrir iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu og Unnur og Vilhjálmur sátu m.a í hagræðingarhópi stjórnvalda. �?au hafa því haft í mörg horn að líta og komið að mörgum málum sl. vikur og mánuði. Um er að ræða kjörið tækifæri til þess að hitta þingmennina, kasta fram spurningum og fá svör frá þeim sem hafa eitthvað með málin að gera.