Samkvæmt heimildum Eyjafrétta verður dýpi í Landeyjahöfn mælt í dag. Sömu heimildir herma að dæling hafi gengið vel um helgina þannig að ef mæling komi vel út í dag, gæti farið svo að höfnin opni í vikunni. Dýpi í og við höfnina hefur verið nægilegt ef frá er skilið haft í hafnarmynninu sem tekið var úr nú um helgina.