Bæjaryfirvöld samþykktu í október í fyrra tilboð Terra vegna sorphirðu og sorpförgunar. Tvö önnur tilboð höfðu borist, annað frá Íslenska Gámafélaginu, og hitt frá Kubb sem dæmt hafði verið ógilt.
Samkvæmt heimildum Eyjafrétta voru skilmálar í útboðsgögnum óskýrir. Mjög óskýrt var hvort sveitarfélagið myndi búa til eigin verðskrá sem nota ætti gagnvart sorpi sem íbúar kæmu með til sorpeyðingar. Þannig sagði í útboðslýsingunni „innheimta móttöku- og urðunargjalda samkvæmt gjaldskrá sveitarfélagsins er á ábyrgð þjónustuaðila“. Þá var óskýrt orðalag hvert gjaldið myndi renna, hvort það myndi bætast við þóknun þjónustuveitandans eða dragast frá þóknun við uppgjör. Þannig sagði „Greiðslur … renna milliliðalaust til þjónustuaðila og eru hluti af þóknun hans samkvæmt skilmálum þessum“.
Þar sem gjaldskrá sveitarfélagsins hafi ekki verið hluti af útboðsgögnum renndi það stoðum undir þann skilning að þjónustuveitandinn hefði ekkert um það að segja hver gjaldskráin yrði og þar af leiðandi að ef gjöldin ætti að renna í hans vasa yrði þau dregin frá þóknun hans enda væri hún hluti af þóknuninni.
Heimildir Eyjafrétta segja að þetta hafi verið a.m.k. ein af ástæðum þess að tilboð Kubbs hafi reynst ógilt. Svör bæjarins varðandi hvað olli því að tilboðs Kubbs var metið ógilt voru að „tilboðsskráin var að hluta til óútfyllt og var þá metið að tilboðið var ógilt. Þeirri niðurstöðu sveitarfélagsins var vísað til úrskurðanefndar útboðsmála og var það staðfest þar að tilboðið var ógilt.“.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst