Óskýrir skilmálar felldu Kubb 

Bæjaryfirvöld samþykktu í október í fyrra tilboð Terra vegna sorphirðu og sorpförgunar. Tvö önnur tilboð höfðu borist, annað frá Íslenska Gámafélaginu, og hitt frá Kubb sem dæmt hafði verið ógilt.

Samkvæmt heimildum Eyjafrétta voru skilmálar í útboðsgögnum óskýrir. Mjög óskýrt var hvort sveitarfélagið myndi búa til eigin verðskrá sem nota ætti gagnvart sorpi sem íbúar kæmu með til sorpeyðingar. Þannig sagði í útboðslýsingunni „innheimta móttöku- og urðunargjalda samkvæmt gjaldskrá sveitarfélagsins er á ábyrgð þjónustuaðila“. Þá var óskýrt orðalag hvert gjaldið myndi renna, hvort það myndi bætast við þóknun þjónustuveitandans eða dragast frá þóknun við uppgjör. Þannig sagði „Greiðslur … renna milliliðalaust til þjónustuaðila og eru hluti af þóknun hans samkvæmt skilmálum þessum“.

Þar sem gjaldskrá sveitarfélagsins hafi ekki verið hluti af útboðsgögnum renndi það stoðum undir þann skilning að þjónustuveitandinn hefði ekkert um það að segja hver gjaldskráin yrði og þar af leiðandi að ef gjöldin ætti að renna í hans vasa yrði þau dregin frá þóknun hans enda væri hún hluti af þóknuninni.

Heimildir Eyjafrétta segja að þetta hafi verið a.m.k. ein af ástæðum þess að tilboð Kubbs hafi reynst ógilt. Svör bæjarins varðandi hvað olli því að tilboðs Kubbs var metið ógilt voru að  „tilboðsskráin var að hluta til óútfyllt og var þá metið að tilboðið var ógilt. Þeirri niðurstöðu sveitarfélagsins var vísað til úrskurðanefndar útboðsmála og var það staðfest þar að tilboðið var ógilt.“.

 

Nýjustu fréttir

Hvað ef eitt lítið skref gæti haft stór áhrif?
Ágreiningur um framtíðarskipulag íþróttasvæðisins við Hástein
Bergey og Vestmannaey með fullfermi í Neskaupstað
Hefja þarf undirbúning að nýsmíði sem allra fyrst
„Ég lít sáttur til baka“
Erfitt ár hjá Herjólfi – Reksturinn undir áætlun 
Meiri halli fyrirséður hjá Náttúrustofu Suðurlands
Töluverður vatnsleki á hafnarsvæðinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.